Helstu aðferðir við orkeringu eru útskýrðar með texta og myndum.
Í bókinni er útskýrt hvernig eigi að fylgja mynstrum, bæði textalýsingum og skýringarmyndum.
Aftast í bókinni eru mynstur svo hægt er að hefjast handa strax!
Gagnvirkur geisladiskur fylgir.
Bókin er 47 bls.
Mælt er með því fyrir byrjendur að nota ekki of fínlegt garn og hentar því Lizbeth garn nr. 10 mjög vel í fyrstu verkin.
Ekki er einhver ein skyttutegund sem hentar byrjendum best, allt fer þetta eftir því hvernig skyttu fólki finnst best að nota. Gott er að hafa í huga að ef notuð er skytta sem ekki er með áfastri nál eða goggi er nauðsynlegt að hafa heklnál við hendina.